Hreinn Gunnar farinn frá Tindastól
Hreinn Gunnar Birgisson, fyrrum leikmaður Tindastóls í körfubolta, skrifaði undir hjá Hetti á Egilsstöðum á komandi tímabili. ,,Aðal ástæðan fyrir þessum breytingum var að ég vildi breyta um umhverfi og prófa eitthvað nýtt”, segir Hreinn Gunnar.
Fyrr í þessum mánuði sagði Feykir.is frá því að stefna körfuknattleiksdeildarinnar væri að fá einn erlendann leikmann til að styrkja liðið. Þá var búið að skrifa undir samninga við níu unga leikmenn.
Að sögn Jóns Inga Sigurðssonar, stjórnarmanns körfuknattleiksdeildarinnar, er búið að tala við alla gömlu jaxlana úr liði Tindastóls um komandi tímabil, en þeir hafa ekki gefið nein svör ennþá um hvort þeir haldi áfram.