Hreinsað til í Hólaskógi

Tveir sjálfboðaliðar tóku sig til og lagfærðu gönguleiðina upp í Gvendarskál í síðustu viku en leiðin lokaðist nær alveg þegar óveðrið geisaði norðanlands fyrr í haust.

Á heimasíðu Hólaskóla kemur fram að samspil snjóþunga og hvassviðris varð til þess að greinar í Hólaskógi klofnuðu og tré féllu og því lokaðist gönguleiðin þar sem hún liggur nærri skógarjaðrinum nær alveg.

Því tóku tveir sjálfboðaliðar sig til og söguðu greinar og ruddu brautina. Þannig að nú ættu íbúar Hólastaðar og gestir að geta tekið gleði sína á ný, þar sem göngustígurinn í gegnum skóginn er aftur orðinn vel fær,“ segir á heimasíðunni.

Þeir sem vilja blanda saman reiðtúr og skógarferð og fara um á hestbaki eru beðnir um að ríða ekki  á göngustígunum, því að þeir eru engan veginn hannaðir til þess að bera þunga hests og þrepin sem þar eru eyðileggjast - eins og því miður hefur orðinn raunin í nokkur skipti.

„Bak við hvert þrep liggur mikil vinna, bæði nemenda ferðamáladeildar og sjálfboðaliða. Því er mælst til þess að reiðmenn haldi sig við veginn sem liggur í gegnum skóginn,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir