Hross í óskilum eftir Víðidalstungurétt
Í Víðidalstungurétt eru í óskilum tvö hross, brúnn hestur sem talinn er vera þriggja vetra ómerktur og dökkrauð tvístjörnótt hryssa líklega tveggja vetra örmerkt en merki ekki skráð.
Hafi eigendur ekki gefið sig fram og fært sönnur á eignarrétt sinn fyrir 10. október nk. fær Sýslumaðurinn á Blönduósi það verkefni að selja hrossin á opinberu uppboði. Nánari upplýsingar um hrossin veitir Ingvari í síma 848 00 03.