Hrossaræktarfundur á Sauðárkróki
Þeir Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson hrossaræktarráðunautur hafa boðað til almenns fundar um málefni hrossaræktarinnar í anddyri reiðhallarinnar Svaðastaða á Sauðárkróki á morgun þriðjudagskvöldið 19. febrúar kl 20:30.
Félag hrossabænda hefur nú opnað síðu á Facebook þar sem hægt er að fylgjast með fréttum úr heimi hrossaræktarinnar. Fjöldamörg hrossabú og félagar í FHB eru jafnframt með síður á Facebook.
FB síðu Félags hrossabænda má finna HÉR.