Hrun í kjölfar skjálfta

Ekki hefur mikið hrunið úr Drangey eftir jarðhræringar síðustu daga, að sögn Þorsteins Sæmundssonar forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra, sem gerði sér ferð út í eyna sl. mánudag ásamt nokkrum meðlimum Drangeyjarfélagsins.

„Ekki var að sjá að mikið hafði hrunið úr eynni, nema í sunnaverðri Uppgönguvík í norðanverðum Lundhöfða, þar sem nefnist Illastapagjá. Þar hafði stór klettur klofnað frá neðst í bergstálinu, en önnur ummerki grjóthruns voru ekki sýnileg,“ segir Þorsteinn í nýjasta tölublaði Feykis og fer þar stuttlega yfir áhrif jarðskjálfta á eyna hér áður fyrr.

Hér má sjá mynd af Illstapagjá sem Þorsteinn tók árið 2005, til samanburðar. Ljósm.: Þorsteinn Sæmundsson.

Þá bárust fregnir af hruni úr Þórðarhöfða og sagði Símon Gestsson ráðsmaður á Bæ á Höfðaströnd í samtali við Feyki að u.þ.b. 5-10 m breið sneið hafði hrunið úr berginu vestan í höfðanum, syðst. „Þetta vakti ekki athygli okkar hér á Bæ í fyrstu en þetta sést vel héðan af bænum. Bergið er ljósgrátt þar sem fyllan hefur hrunið úr og undir má sjá skriðu,“ útskýrði Símon.

 

Fleiri fréttir