Hugleiðing um íslenskt lýðræði

Á Hólum í Hjaltadal verður boðið uppá dagskrá í tengslum við dag Guðmundar biskups góða miðvikudaginn 16. mars. Dagskráin verður í Auðunarstofu og hefst kl. 16:00.

Þar mun Vilhjálmur Árnason prófessor flytja erindi sem hann nefnir "Er lýðræði lausnarorð eða hluti vandans? Hugleiðing um íslenskt lýðræði". Vilhjálmur er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og var formaður vinnuhóps um siðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis 2009–2010 og einn höfundur 8. heftis Rannsóknarskýrslunnar en það hefti fjallar um siðferði og starfshætti í tengslum við fall íslensku bankanna 2008.

Að loknu erindi verður boðið uppá umræður. Jón Þorsteinn Reynisson leikur á harmonikku klassísk verk í eigin útsetningu. Jón Þorsteinn er fæddur 1988 og hóf tónlistarnám 5 ára gamall, en sneri sér síðar alfarið að harmónikunni og eftir eins árs nám lék hann einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum hennar á

Hofsósi. Í nóvember á síðasta ári kom út hljómdiskurinn Caprice með leik Jóns Þorsteins sem inniheldur klassísk verk eftir: Boëllmann, Paganini, Scarlatti, Mozart, Beethoven, Chopin, Vivaldi, Bach og Wagner.

Úthlutað verður styrk úr Áheitasjóði Guðmundar góða. Guðmundur Arason var biskup á Hólum frá 1203 til 1237 og þótti hann góður til áheita og þykir enn því reglulega berast áheit í sjóð Guðmundar góða. Hólanefnd hefur umsjá með sjóðnum og hefur hún ákveðið að nota það fé sem safnast til að styrkja góð málefni og einstaklinga eftir því sem efni standa til. Þetta er í fimmta skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Ef einhverjir vilja heita á Guðmund má leggja inn á reikning sjóðsins sem er í vörslu Arion banka á Sauðárkróki: 0310-18-650900, kt. 630169-0469

Að samkomunni standa Hóladómkirkja, Guðbrandsstofnun og Menntaskólinn á Akureyri. Samstarf þessara aðila hófst árið 2006 í tengslum við 900 ára afmæli Hólastaðar og byggir á eflingu fræðslu og umræðu um siðfræði.

Fleiri fréttir