Hugmynd um að byrja kennslu síðar að deginum næsta vetur
Skólastjóri Grunnskóla Húnaþings vestra óskar, á fésbókarsíðu skólans, eftir viðbrögðum, athugasemdum og skoðunum foreldra og hagsmunaaðila við þá hugmynd að byrja kennslu kl. 9:00 í stað 8:30 næsta vetur. Jákvæður vilji er fyrir hugmyndinni meðal starfsmanna skólans en mikilvægt er að fá fram sjónarmið sem langflestra foreldra við hugmyndinni áður en hún verður tekin til frekari skoðunar, eða slegin út af borðinu.
Á síðunni segir að kostir þess að byrja kl. 9:00 séu t.d. þeir að nemendur sem eiga langt að sækja mæta síðar og vinnutími kennara nýtist betur. Þá eru líkur til þess að unglingum gæti þótt hugmyndin aðlaðandi og nefna má að birtutími á skólatíma lengist. Gert er ráð fyrir því að skólinn opni eftir sem áður 7:45 og verði opinn til 16:00.
Fram kemur að gallar hugmyndarinnar séu óljós fjöldi og aldursamsetning nemenda á Hvammstanga sem mætir kl. 8:00 í skólann og þá þarf að hafa tiltekið skipulag í þennan klukkutíma.
„Að morgni mætti hugsa sér stöðvar sem væru í boði fyrir nemendur, t.d. í íþróttahúsi, heimanámsaðstoð, lestur o.fl. Annar mínus er skipulag íþróttahúss en vandasamt gæti orðið að koma heim og saman æfingatímum nema lengja opnunartíma íþróttamiðstöðvar ef jafn mikil aðsókn verður að húsinu fyrir hinar ýmsu æfingar,“ segir í tilkynningunni.
Fræðsluráð hefur samþykkt að senda kynningu á hugmyndinni til foreldra og fá viðbrögð við henni.
Fyrirspurnir, athugasemdir eða tillögur sendist á netfangið grunnskoli@hunathing.is til 15. apríl 2018.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.