„Hugsað um börn“ á grímuballi Grunnskólans austan Vatna
Nemendur Grunnskólans austan Vatna og leikskólans Tröllaborgar héldu sameiginlegt grímuball sl. föstudag. Nemendum Sólgarðaskóla var einnig boðið á ballið og samkvæmt heimasíðu Grunnskólans austan Vatna var þar mikið fjör, farið í leiki og dansað.
Á sama tíma og grímuballið var haldið voru eldri nemendur skólans að taka þátt í verkefni sem kallast Hugsað um barn og varð því minna úr dansi hjá þeim. Verkefnið felst í því að krakkarnir fá þar til gerða brúður, sem þau eiga að annast allan sólarhringinn í nokkra daga og fá tækifæri til að læra, gera mistök og leiðrétta þau, án þess að það hafi áhrif á raunverulegt ungabarn.
Hér má sjá myndband af eldri krökkunum annast „börnin sín“ í grímubúningum sínum:
http://www.skagafjordur.is/JWFLVPlayer.asp?cat_id=5638&file_id=85014
Hér má sjá myndband af fjörinu hjá yngri krökkunum á grímuballinu.
http://www.skagafjordur.is/JWFLVPlayer.asp?cat_id=5638&file_id=85009