Hunang í heimaframleiðsluna

Skagfirðingurinn María Eymundsdóttir hefur komið sér upp heldur óhefðbundnum búskap, allavega á Íslandi, en hún stundar býflugnabúskap. Áhugann á búskapnum segir hún hafa blundað hjá henni um nokkurt skeið en í ár ákvað hún að sigrast á óttanum við þær röndóttu og koma sér upp búi.

María fékk flugurnar til sín í sumarbyrjun en býflugnapakkinn telur um 1,5 kg af flugum, eða um 15 þúsund stykki, og voru þær fluttar inn frá Álandseyjum. María hugar að flugunum einu sinni í viku en á meðan búin eru svona lítil er mikilvægt að gefa þeim sykurvatn og frjódeig.

Blaðamaður ræddi við Maríu á meðan hún hugaði að flugunum sínum en viðtalið má lesa í Feyki vikunnar.

Fleiri fréttir