Húnar aðstoða ferðamenn

Björgunarsveitina Húnar fór í vikunni sem leið í þrjú útköll til að aðstoða ferðamenn sem lent höfðu í vandræðum. Mynd: fésbókarsíðu Húna.
Björgunarsveitina Húnar fór í vikunni sem leið í þrjú útköll til að aðstoða ferðamenn sem lent höfðu í vandræðum. Mynd: fésbókarsíðu Húna.

Á fésbókarsíðu Björgunarsveitarinnar Húna í Húnaþingi vestra kemur fram að í gær hafi sveitin, í þriðja sinn á viku tímabili, aðstoðað ferðamenn sem lentu í ógöngum á vegi 717. Höfðu fimm Brasilíumenn komið sér í ógöngur er þeir óku út af vegi 717 inn á slóða sem liggur að sumarbústöðum við Vesturhópsvatn.

„Vel gekk að spila bílinn þeirra upp og eiginlega ótrúlegt hvað þau höfðu komist langt. Þau höfðu á orði að þau væru alveg óvön að aka við svona aðstæður og voru eiginlega búin á því. En eftir að hafa hughreyst þau aðeins voru þau tilbúin að halda ferðalaginu áfram og vonandi gengur það vel hér eftir,“ segir í færslu á fésbókarsíðu Húna.

Fleiri fréttir