Húnar aðstoða fólk á Laxárdalsheiði
Björgunarsveitin Húnar aðstoðaði fólk á bifreið sem lenti utan vegar á fólksbíl sínum á Laxárdalsheiði aðfaranótt mánudags.
Samkvæmt heimasíðu Björgunarsveitarinnar óskaði Neyðarlínan eftir aðstoð upp úr klukkan eitt í eftir miðnætti að björgunarsveitin færi til aðstoðar við fólk sem lenti í vandræðum á Laxárdalsheiði en þau lentu utanvegar á fólksbíl sínum austan í heiðinni.
Björgunarsveitarmenn lögðu af stað frá Borðeyri og var bílinn dreginn upp en hann sat illa fastur utan vegar. Samkvæmt björgunarsveitarmönnunum var alls ekki fólksbílafært á heiðinni þá nótt.