Húnar aðstoða rjúpnaskyttur

Um klukkan fjögur sl. laugardag var björgunarsveitin Húnar kölluð út þar sem óskað var eftir aðstoð hennar eftir að rjúpnaskyttur á Víðidalstunguheiði höfðu fest jeppa sinn í Haugakvísl.  Til að bæta gráu ofan á svart hafði bíllinn bilað er þeir voru að reyna að losa hann.

 

Segir á heimasíðu Húna að farið var á Húna 2 og gekk vel að ná bílnum upp og tókst að koma honum aftur í lag á staðnum svo hægt var að aka honum aftur til byggða. Voru björgunarsveitarmenn komnir aftur í hús er klukkan var að ganga átta um kvöldið.

Fleiri fréttir