Húnar til bjargar fólki á Arnarvatnsheiði

Óskað var eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Húna í gær um kl 13:00 af ferðamanni sem lenti í vandræðum með bíl sinn norðan við Arnarvatn vegna bilunar. Farið var í fyrstu á tveimur bílum frá Hvammstanga kl 14:00 í verkefni sem leit ekki út fyrir að tæki langan tíma en er kom fram á heiði var skyggnið afleitt og búið að kyngja niður svo miklum snjó að það var orðinn kúludráttur á 46" breyttum bíl og sóttist ferðin mjög seint af þeim sökum.

Á heimasíðu Húna segir að er á daginn leið var orðið ljóst að erfiðleikum væri bundið að draga bílinn niður vegna ófærðarinna og var því ákveðið að senda Hagglund beltabílinn af stað til að draga bílinn. Fór svo að lokum að það tókst að koma hinum bilaða bíl í lag á staðnum svo ekki þurfti að draga hann niður af heiðinni. Voru menn komnir aftur til baka rétt undir miðnætti úr ferð sem átti að vera skottúr á heiðina.

Myndir úr leiðangrinum er hægt að nálgast á heimasíðu björgunarsveitarinnar, sjá HÉR

Fleiri fréttir