Húnaþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður fá styrk til lagningar ljósleiðara
Í síðustu viku skrifuðu fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í ráðuneytinu.
Samtals fá sveitarfélögin 24 styrki að upphæð 450 milljónir króna og fá þau á bilinu 2 til 74 milljónir króna hvert. Auk styrkjanna frá fjarsiptasjóði leggja íbúar og sveitarfélög að lágmarki 350.000 kr. af mörkum vegna hverrar tengingar en þörf er á töluvert hærra framlagi heimamanna í mörgum tilvikum. Í tilfellum þar sem sveitarfélag ætlar ekki að eiga og reka eigið kerfi greiða fjarskiptafyrirtæki fyrir það að eignast slík kerfi eða reka fyrir hönd sveitarfélagsins.
Einnig skrifaði ráðherra undir samninga við 15 sveitarfélög um sérstaka byggðarstyrki á billinu ein til 15 milljónir króna í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt.
Tvö sveitarfélög á Norðurlandi vestra, Húnaþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður, eru meðal þeirra sem styrki hljóta. Húnaþing vestra fékk 11.700.000 kr. í byggðastyrk og 24.600.000 kr. í samkeppnisstyrk eða 36.300.000 kr. alls. Skagafjörður fékk 5.800.000 kr. í byggðastyrk og 16.400.000 kr. í samkeppnisstyrk eða 22.200.000 kr. alls.
Nánari upplýsingar má finna á vef stjórnarráðsins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.