Húnaþing vestra semur við Urðun ehf. um sorphirðu
Byggðarráð Húnaþings vestra hefur samþykkt að fela oddvita, sveitarstjóra og forstöðumanni tæknideildar að ganga til samninga við Urðun ehf. á Hvammstanga um sorphirðu fyrir sveitarfélagið. Urðun ehf. var með lægsta boð af þeim fjórum fyrirtækjum sem gerðu tilboð í sorphirðu og rekstur gámastöðvar í Húnaþingi vestra í desember sl.
Ríkiskaup opnaði tilboð fyrir hönd Sveitarfélagsins Húnaþings vestra þann 26. janúar sl. og hefur nú farið yfir útboðsgögnin. Ríkiskaup lagði fram minnisblað dags. 17. febrúar sl. þar sem m.a. kemur fram að ljóst sé að þau frávikstilboð sem bárust fullnægja ekki þeim lágmarkskröfum útboðsgagna til eiginleika þess sem óskað er eftir og koma þau því ekki til frekari skoðunar.
Í umræddu minnisblaði kemur fram varðandi aðaltilboð að lægsta tilboðið kom frá Urðun ehf. „Bráðabirgðaársreikningur Urðunar fyrir árið 2011 sýnir jákvæða eiginfjárstöðu fyrirtækisins eins og krafa var gerð um í útboðsgögnum. Spurningar voru sendar til Urðunar þar sem óskað var eftir nánari skýringum á tilboði þeirra og staðfestingu varðandi nokkur atriði útboðsgagna.Telja Ríkiskaup að Urðun hafi sýnt fram á að geta staðið við tilboð sitt og þær skuldbindingar sem farið er fram á í útboðsgögnum,“ segir í fundargerð Byggðaráðs Húnaþings vestra.
Niðurstaða Ríkiskaupa var þar að leiðandi að gengið verði til samninga við Urðun ehf. um sorphirðu í Húnaþingi vestra. Nánar um tilboðin má sjá hér á fundargerð Byggðarráðs Húnaþings vestra.