Hundum lógað eftir að þeir bitu og særðu kindur
Fjórum kindum á bæ einum í Viðvíkursveit var lógað í vikunni eftir að hundar af nágrannabæ höfðu gengið hart að þeim með biti og glefsi. Sjö aðrar kindur lentu einnig í hundunum en að mati dýralæknis voru þær ekki í eins slæmu ástandi. Óvíst er þó hvernig þeim muni reiða af og þá hvort þær munu ná sér að fullu.
Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki sem fékk málið inn á borð til sín hefur þessi atgangur hundanna staðið í einhvern tíma en ekki tekist að finna sökudólgana fyrr. Verða þeir í samráði við eigendur aflífaðir.