Húnvetnska Liðakeppnin fór af stað sl. sunnudag

Myndir: Sigurvegari 1. Flokks, Fanney Dögg Indriðadóttir, fékk gjafabréf frá Regulator Complete Ís. Í 2. sæti lenti Elvar Logi Friðriksson.
Myndir: Sigurvegari 1. Flokks, Fanney Dögg Indriðadóttir, fékk gjafabréf frá Regulator Complete Ís. Í 2. sæti lenti Elvar Logi Friðriksson.

Fyrsta mót Húnvetnsku Liðakeppninnar fór fram sl. sunnudag í reiðhöllinni á Hvammstanga. Keppt var í fyrsta skipti í TREC en það er vinsælt keppnisform meðal frístundarhestamanna víða um heim en um er að ræða þrautakeppni sem kallar fram það besta í góðum reiðhesti. Á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts segir að fjölhæfni og geðslag íslenska hestsins séu talin vel til þess fallin að nota í TREC. Hesturinn þurfi að vera vel taminn, kjarkaður og hlýðinn til að farnast vel í greininni en reglur Þyts í greininni má sjá á heimasíðu félagsins http://www.thytur.123.is.

Eftirfarandi urðu úrslit í öllum flokkum eftir keppni helgarinnar:

Barnaflokkur:
1. sæti Dagbjört Jóna Tryggvadóttir  og Dropi frá Hvoli 91 stig
2. sæti Indriði Rökkvi Ragnarsson og Ígull frá Grafarkoti 59 stig

Unglingaflokkur:
1. sæti Rakel Gígja Ragnarsdóttir og Ronja frá Lindarbergi 84 stig
2. sæti Margrét Jóna Þrastardóttir og Melodý frá Framnesi 68 stig
3. sæti Bryndís Kristinsdóttir og Kjarval frá Hjaltastaðahvammi 62 stig
4. sæti Eysteinn Kristinsson og Glóð frá Þórukoti 40 stig

3. flokkur:
1. sæti Eva-Lena Lohi og Kolla 103 stig
2. sæti Sigrún Eva Þórisdóttir og Skutla frá Hvoli 80 stig
3. sæti Jóhannes Ingi Björnsson og Baltasar frá Litla-Ósi 64 stig

2. flokkur:
1.sæti Stine Kragh og Prins frá Þorkelshóli 121 stig
2. sæti Pálmi Geir Ríkharðsson og Laufi frá Syðri-Völlum 82 stig

1. flokkur:
1. sæti Fanney Dögg Indriðadóttir og Ísó frá Grafarkoti 106 stig
2. sæti Elvar Logi Friðriksson og Gutti frá Grafarkoti 39 stig

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir