Húsfyllir á fyrstu tónleikum Sóldísar
Hinn nýstofnaði kvennakór Sóldís í Skagafirði hélt sína fyrstu tónleika í Menningarhúsinu Miðgarði í gær á konudaginn að viðstöddu fjölmenni. Glæsilegur kór sem á framtíðina fyrir sér.
Dagskráin hófst á því að þær Sigurlaug Maronsdóttir, Íris Lúðvíksdóttir og Drífa Árnadóttir sögðu frá tilurð kórsins, undirbúning og stofnun hans og fyrstu skrefum. Kom það fram í kynningunni að Drífa stendur sannarlega undir nafni því hún var sú sem dreif þetta allt áfram frá því hún fékk hugmyndina að stofnun kórsins og henni sérstaklega þakkað fyrir það.
Söngskráin samanstóð af 16 lögum sem ættuð eru víða að og gestir hrifust af söng kórsins sem sungu á ýmsum tungumálum því fyrir utan íslensku var sungið á ensku, frönsku og svahili sem m.a. er opiinbert tungumál í Kenýa.
Stjórnandi kórsins, Sólveig Einarsdóttir, hefur náð á undra stuttum tíma að virkja þessar 40 konur sem bæði koma úr Skagafirði og Húnavatnssýslu og skapað skemmtilegan kór sem á mikla framtíð fyrir sér. Undirleikari kórsins er Rögnvaldur Valbergsson sem einnig útsetti lög fyrir kórinn.
Á eftir tónleikum var boðið upp á kaffiveitingar og voru eiginmenn kórkvenna áberandi við að þjóna til borðs.