Húshitun á Sauðárkróki aðeins 1600 krónum hærri en í Hveragerði

Í tilefni af frétt sem birtist hér á vefnum í gær skal þess getið að Byggðastofnun hefur nú í a.m.k. þrjú ár fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húshitun á mismunandi stöðum á landinu og síðustu tvö ár var húshitunarkostnaður lægstur á Sauðárkróki.

Skagafjörður hefur komið mjög vel út úr þessum samanburði öll árin og var kostnaður við húshitun lægstur á Sauðárkróki árin 2013 og 2014 samkvæmt samantektinni. Í upplýsingum frá Skagafjarðarveitum kemur einnig fram að húshitunarkostnaður í Skagafirði á alls staðar að vera sá sami þar sem gjaldskráin er miðuð út frá því að greitt sé sama verð fyrir hverja orkueiningu.

Í áðurnefndri samantekt fyrir árið 2015 er húshitun á Sauðárkróki næst-ódýrust á eftir Hveragerði og munar þar um 1.600 krónum á ársgrundvelli. Þess má í því samhengi geta að gjaldskrá Skagafjarðarveitna hefur ekki hækkað síðan um mitt ár 2013.

Fleiri fréttir