Húsnæðislaus leikstjóri

Leikfélag Sauðárkróks ætlar samkvæmt venju að setja upp leikrit um Sæluvikuna sem haldin er þetta árið frá 1. til 8. maí. Verið er að lesa yfir handrit sem koma til greina til uppsetningar, búið er að ráða leikstjórann en húsnæði fyrir hann vantar.

Leikstjórinn heitir Jakob Jónsson og hefur verið búsettur í Svíðjóð um árabil. Hann var valinn úr hópi 5 umsækjenda og þykir góður fengur fyrir Leikfélagið. Nú leitar leikfélagið að herbergi til leigu fyrir Jakob og tekur Sigurlaug Dóra formaður félagsins við fyrirspurnum í síma 8625771 eða á netfanginu sigurlaugdora@hotmail.com

Að sögn Sigurlaugar eða Lullu eins og hún kallast í daglegu tali, er ekki búið að ákveða enn hvaða leikrit verður sett upp en líklega verður léttur farsi fyrir valinu.

Fleiri fréttir