Hvað á trúðurinn að heita?

Glæsilegur trúður hefur tekið sér bólfestu í barnavaðlauginni í sundlauginni á Hvammstanga og eins og góðum trúðum sæmir þarf hann að bera nafn við hæfi. Af því tilefni hefur sundlaugin efnt til nafnakeppni meðal unga fólksins.
Áhugasamir finna þátttökuseðla í sundlauginni á Hvammstanga og nafn trúðsins verður síðan tilkynnt á heimasíðu sveitafélagsins þann 19. apríl nk.Vinningshafi fyrir besta nafnið fær páskaegg í verðlaun.

Fleiri fréttir