Hvalir sjást í Skagafirði
Vegfarandi hafði samband við Feyki í gær og hafði séð hval 200 metra austan við hafnargarðinn á Sauðárkróki. Hvalurinn hafði komið upp einu sinni eða oftar og síðan látið sig hverfa.
Feykir hafði samband við Þorstein Sæmundsson hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra sem kannaðist við ferðir hvala í fjörðinn þó svo að hann hafi ekki orðið var við þennan umrædda hval. „Það er mikið líf í firðinum um þessar mundir og ekki langt síðan stórhveli elti síldartorfu hér alveg upp undir land áður en hann lét sig hverfa á haf út á nýjan leik,“ sagði Þorsteinn í spjalli við blaðamann.