Hvammstangadeild RKÍ kannar grundvöll fyrir jólasjóð
Hvammstangadeild Rauða krossins hefur áhuga á að stofna jólasjóð, að fyrirmynd Fjarðabyggðar, sem hefur það hlutverk að styðja við bakið á þeim sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda fyrir jólin og er verið að kanna möguleikana á að stofna slíkan sjóð.
Samkvæmt heimasíðu Fjarðabyggðar er jólasjóðurinn er samstarfsverkefni milli Rauða kross deilda í Fjarðabyggð, kirkjunnar og Fjarðabyggðar um að styrkja þá sem eiga erfitt um jólin. Styrkurinn felst í úttektarkorti í nokkrum matvöruverslunum á Austurlandi. Einnig er tekið við jólapökkum sem jólasveinninn dreifir til bágstaddra á svæðinu fyrir jólin.
Hvammstangadeild RKÍ leitar nú til fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga sem geta lagt sjóðnum lið. Nánari upplýsingar veitir Rakel í síma 695-1178, einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið rakelrun@simnet.is.