Íbúafundur á Borðeyri um verndarsvæði í byggð
Boðað hefur verið til íbúafundar í skólahúsinu á Borðeyri á morgun, fimmtudaginn 1. júní, kl. 13:00 þar sem undirbúningur Húnaþings vestra að umsókn til mennta- og menningarmálaráðherra um að gamli hluti Borðeyrar, „plássið“ svokallaða, verði skilgreindur sem verndarsvæði í byggð. Á fundinum verður verkefnið kynnt fyrir íbúum og þeim gefinn kostur á að spyrja spurninga og/eða koma með athugasemdir.
Á fundinum munu Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri Húnaþings vestra, Sólveig Hulda Benjamínsdóttir forstöðumaður safna í Húnaþingi vestra og Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur kynna verkefnið, hvað felst í því og hvar það er statt í ferlinu og sitja fyrir svörum.
Verndarsvæði í byggð er byggð innan afmarkaðs svæðis sem nýtur samkvæmt ákvörðun ráðherra sérstakrar verndar vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis. Lög þess efnis tóku gildi árið 2015. Markmið þeirra eru að vernda menningarsöguleg og listræn verðmæti, bæta umhverfið og auka aðdráttarafl hverfa og bæjarhluta.