Íbúafundur á Sauðárkróki um verndarsvæði í byggð
Sveitarfélagið Skagafjörður boðar til opins íbúafundar í Húsi frítímans á Sauðárkróki á sunnudaginn kemur, 3. júní, klukkan 16:00. Á fundinum verður farið yfir stöðu verkefnisins Verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki og í framhaldi af því óskað eftir hugmyndum, umræðu og ábendingum. Eru íbúar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta á fundinn og leggja sitt af mörkum til að móta verkefnið svo svæðið megi þróast í sátt við íbúa og umhverfi.
Verndarsvæði í byggð er byggð innan afmarkaðs svæðis sem nýtur samkvæmt ákvörðun ráðherra sérstakrar verndar vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis. Lög þess efnis tóku gildi árið 2015 og er tilgangur þeirra að stuðla að verndun einstakra bæjarhluta í kaupstöðum og bæjum landsins með það að markmiði að vernda menningarsögulegt og listrænt gildi einstakra bæjarhluta um ókomna tíð ásamt því að bæta umhverfið og auka aðdráttarafl hverfa og bæjarhluta. Verkefnið skiptist í skráningu húsa og fornleifa ásamt greinargerð þar sem metið er varðveislugildi og gerðir skilmálar um vernd og uppbyggingu innan svæðisins. Sveitarfélagið Skagafjörður hefur hlotið styrk frá Minjastofnun Íslands til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, bæði á Hofsósi og á Sauðárkróki.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.