Íbúar á Reykjaströnd vilja úrbætur

Reykjaströnd í Skagafirði. Mynd/BÞ
Reykjaströnd í Skagafirði. Mynd/BÞ

Íbúar á Reykjaströnd í Skagafirði hafa farið þess á leit við Sveitarfélagið Skagafjörð að það beiti sér fyrir nauðsynlegum úrbótum á Reykjaströndinni. Í bréfi, dagsett 10. júní, sem tekið var fyrir á fundi byggðarráðs þann 23. júní sl. er talin upp forgangsröðun á uppbyggingu samgöngumannvirkja, snjómokstri, sorphirðu, lækkun kyndingarkostnaðar með hitaveituvæðingu, þriggja fasa rafmagni, síma og nettengingar.

Þakkað er fyrir erindið í fundargerð byggðarráðs og tekið fram að þau atriði sem snúa beint að sveitarfélaginu verði skoðuð, s.s. snjómokstur, sorphirða og hitaveituvæðing. 

„Varðandi atriði sem snúa að ríkisvaldinu s.s. uppbyggingu samgöngumannvirkja, kyndingarkostnaður, þriggja fasa rafmagn, sími og nettengingar, er byggðarráð sammála um mikilvægi framangreindra þátta fyrir búsetu og mun áfram beita sér fyrir úrbótum á þeim. Byggðarráð skorar enn og aftur á ríkisvaldið að beita sér fyrir jöfnun búsetuskilyrða á landinu öllu,“ segir loks í fundargerð. 

Fleiri fréttir