Íbúum Skagafjarðar hefur fjölgað
Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram að íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað undanfarið ár. Samkvæmt tölum úr þjóðskrá fór íbúafjöldinn lægst niður í 3884 íbúa í nóvember sl. en fjöldi íbúa var 3910 þann 1. janúar 2015 og eru nú orðnir 3928 talsins.
Þá er vakin athygli á því að fólk vanti í hin ýmsu störf; m.a. eru auglýsingar um opinber störf á starfatorg.is þar sem auglýst eftir yfirhjúkrunarfræðingi sjúkrasviðs, sálfræðingi og lífeindafræðingi á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki, og aðstoðarverslunarstjóra í vínbúð ÁTVR á Sauðárkróki.
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir karlmanni til starfa í sundlaug Sauðárkróks og aðilum sem eru reiðubúnir að taka að sér börn í daggæslu.
Í síðustu tölublöðum Sjónhorns, dagskrár- og auglýsingarits Skagfirðinga, má jafnframt frá áramótum sjá auglýsingar um laus störf í Versluninni Eyri, Bláfelli, aðstoðarmanneskju við heimilishald og þrif, starfsmann í slátrun og úrbeiningu hjá Kjötafurðastöð KS, starfsfólk á þjónustustöð N1 á Sauðárkróki og framtíðarstörf í sjávarútvegi hjá FISK Seafood.