Iðjan á Hvammstanga tekur við kertaafgöngum
Þeir sem búa yfir kertaafgöngum mega gjarnan skila þeim til Iðju, vinnustofa fyrir fatlaða einstaklinga í Húnaþingi vestra, en þar verða þau brædd upp og notuð til að gera ný kerti.
„Vaxið er gott hráefni til endurvinnslu sem við ættum ekki að láta fara til spillis,“ segir í tilkynningu frá Iðjunni sem birt var á vefsíðu Norðanáttar. Starfsmenn Iðjunnar sinna verkefnum af ýmsu tagi fyrir fyrirtæki og félagasamtök.
Hægt er að skilja poka eftir fyrir utan dyr Iðjunnar að Brekkugötu 14 (neðri hæð) ef enginn er á staðnum. Síminn í Iðju er: 451-2926