Indriði og Óskar hlutu 3. verðlaun fyrir Markaappið

Tveir nemendur í 6. bekk Varmahlíðarskóla, þeir Indriði Ægir Þórarinsson og Óskar Aron Stefánsson, hlutu um síðustu helgi þriðju verðlaun í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2016. Verðlaunin hlutu þeir fyrir hugmynd sína að Markaappi en þeir komust einnig áfram í keppninni með aðra hugmynd, svokallaðan Tappahníf.
„Ég fæ alltaf hugmynd fyrir Nýsköpunarkeppni út frá því að ég byrja að finna vandamál og svo reyni ég að finna hvað leysir þau,“ segir Óskar. Þeir félagarnir hafa áður tekið þátt í keppninni og komst Óskar áfram í fyrra, en hann segist gera mikið af því að hugsa um nýjar hugmyndir. Eru þeir báðir þegar farnir að huga að þátttöku á næsta ári og komnir með ákveðnar hugmyndir sem þeir ætla að þróa þangað til. Segja þeir símana koma sér vel til að skrá hjá sér hugmyndir jafnóðum og þær kvikna.
Markaappið á að nýtast í búskap en það er þannig hugsað að hægt sé að fletta upp marki á kindum eða lömbum sem hafa tapað númerum sem sett eru í eyrun á þeim á vorin þegar þær koma í réttir að hausti. „Þetta er byggt á landsmarkaskránni og á að vera með notendavænu viðmóti og er ætlað bændum og öllum sem hafa gaman af að draga fé í réttum,“ segir Þórarinn um appið. „Þegar markinu er flett upp kemur fullt nafn bóndans, nafnið á bænum og bæjarnúmerið og í hvaða héraði bærinn er.“
Að launum hlutu þeir félagar glæsilega Samsung Galaxy A3 síma og verðlaunagripi. Auk þess fengu þeir 15 þúsund króna inneign í Ikea fyrir hugmyndina að tappahnífnum. Hann er ætlaður til að skera á innsigli á plasttöppum, t.d. á gosflöskum og djúsbrúsum. Sú hugmynd komst, sem fyrr segir, einnig áfram í keppninni. Þórarinn og Óskar segjast vonast til að appið verði að veruleika en til að fullgera það þurfi forritunarkunnáttu og hyggjast þeir hafa samband við Bændasamtök Íslands um framhaldið.