Indverskt gúmmulaði með kaffinu

Starfsfólk á Nýprenti datt í lukkupottinn í morgun þegar boðið var uppá indverskt nammihlaðborð með kaffinu. Það var að sjálfsögðu framkvæmdastýran Þuríður Harpa sem kom færandi hendi með litríkt góðgætið sem leit nú reyndar frekar út eins og blandaður osta- og þorrabakki á sýrutrippi.

En hvað um það. Litirnir glöddu augað og tungan lék við eitthvað nýtt og spennandi. Nammið var verulega sætt en þó í senn frískt og væmið og í það minnsta allt öðruvísi en við vesælir Íslendingar eigum að venjast.

Nammð keypti Þuríður Harpa á risa markaði í Delhí.

Fleiri fréttir