Innansveitarkrónika og sitthvað af útsveitunum í Miðgarði

Hin geysivinsæla söngskemmtun Sönglög í Sæluviku verður haldin í Menningarhúsinu Miðgarði nk. föstudag, þann 24. apríl, en þemað þetta árið er Innansveitarkróníka og sitthvað af útsveitunum. „Þar vísað í pistlana og tónlistin látin ríma þar við,“ segir Stefán Gíslason, einn skipuleggjenda tónleikanna, í samtali við Feyki.

Sönglagasveitin verður á sínum stað, skipuð þeim Kristjáni Reyni á trommur, Margeiri Friðriks á bassa, Sigvalda Helga á gítar og ukulele, Einari Þorvalds á gítar auk Stefáns á píanó. „Að þessu sinni fáum við tvo frábæra pistlahöfunda úr héraði sem munu fara með gamanmál og býst ég við og vona að þeir láti ýmislegt flakka,“ segir Stefán.

„Atli Gunnar Arnórs, Ólafur Sindra, Sigvaldi Helgi, Sóla og Malen Áskelsdætur, Íris Olga, Jón Hallur, Gunni Rögnvalds ásamt gamla hrútaskelfinum honum Óskari P sjá um söng, gamanmál og hvað eina sem getur komið fólki til að hlægja - til þess er leikurinn gerður,“ segir Stefán að lokum.

Miðasala fer fram við innganginn, aðgangseyrir er 3500 kr.

Fleiri fréttir