Innritun hafin í Tónlistarskóla Skagafjarðar

Innritun fyrir næsta skólaár er hafin, innritað verður í gegnum „íbúagátt“ sveitafélagsins á vefslóð þess www.skagafjordur.is. Þeir sem búa fyrir utan sveitafélagið Skagafjörð geta ekki sótt um skólavist í gegnum íbúagátt sveitafélagsins, en geta fengið umsóknareyðublöð í tónlistarskólanum eða á heimasíðu skólans.

  • Til útskýringa er leiðin á íbúagátt eftirfarandi:
  • 1.         Tengjast www.skagafjordur.is
  • 2.         Farið inn á íbúagátt vinstra megin á heimasíðunni.
  • 3.         Þá kemur íbúagátt opnuð og þú smellir á „smelltu hér til að tengjast íbúagátt“
  • 4.         Farðu inn á nýskráning hægra megin og gefðu upp það sem beðið er um, þá færðu sent lykilorð í einkabankann þinn eða getur fengið lykilorð á skrifstofu sveitafélagsins í síma 455-6000
  • 5.         Þegar það er búið er hægt að fara í Innskráning og setja kennitölu og lykilorð.
  • Þá koma upp nokkrir valhnappar, þú smellir á umsóknir.

 

Þegar sótt er um skólavist skal gefa allar upplýsingar sem beðið er um. Þeir nemendur sem flokkast undir almennadeild geta aðeins fengið hálfa kennslu, þeir sem flokkast undir áfangadeild hafa lokið 1. stigi og eiga rétt á heili kennslu.

Skólagjöld verða óbreytt frá því í fyrra, sjá heimasíðu skólans

tonlistarskoli.skagafjordur.is eða http://www.skagafjordur.is/

Kennsla hefst mánudaginn 30. ágúst

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir