Instagram á ísskápinn!!
Instagram er myndaforrit sem aðallega er notað í gegnum snjallsíma og hefur það verið að fara stórum á feisbúkk og víðar. Útlistun morgun, hádegis og kvöldverðar hjá sótsvörtum almúganum hefur aldrei verið jafn sterkt í meðvitund og vitneskju hins almenna feisbúkkborgara eins og eftir að Instagram náði flugi!
Fröken Fabjúlöss er óttalega hrifin af þessu tiltekna forriti þó svo að ákveðin tæknifötlun valdi því að notkun hjá téðri Fröken hefur ekki verið umfram meðaltal. En eitt rak á fjörur Fabjúlöss heimsveldisins sem þykir einstaklega sniðugt og óhugnalega patent með tilliti til þess hversu skemmtilegar myndir koma oft út úr Instagraminu: Instagram myndirnar sem segull!!!
Fyrirtæki sem heitir Sticky Gram hefur tekið það upp á sína arma að safna saman Instagram myndum þeim er almenningur sendir inn til þeirra og prenta þær út á segla sem er svo alveg einstaklega patent að smella á nærliggjandi ísskápa, bílhurðir og hvern þann segulelskandi járnflöt sem hæfir myndefninu!
Stærð hverrar pöntunar eru 9 myndir/seglar og er stærðin á snilldinni 5 x 5 cm (svipuð og stærð instagram myndar á Iphone) og kosta 9 seglar 14.99 dollara (ca 1800 kr íslenskar). Sticky Gram afgreiðir pöntunina innan við 24 tímum frá því að hún er lögð inn og þar sem fyrirtækið er staðsett í Bretlandi þá ættu instagram seglarnir að vera komnir í hendur pantanda sirka viku seinna, einstaklega skemmtilegt alveg hreint!!!
Er þetta ekki hin skemmtilegasta jólagjöf??? Fröken Fabjúlöss hendir þessu inn í "öðruvísi-sniðugt-frumlegt" kategoríuna!