IRIS á fjölum Miðgarðs í kvöld
Leikhópur unglingastigs Árskóla sýnir í kvöld leikritið IRIS í Menningarhúsinu Miðgarði en uppsetningin var verkefni hópsins í samvinnu við Þjóðleik í vetur. Leikritið er um viðburðaríkt líf Írisar ungrar stúlku sem á erfitt með að fóta sig í grimmum heimi unglinga.
Þjóðleikur er samvinnuverkefni fjölmargra áhugasamra aðila á Norðurlandi og Þjóðleikhússins um eflingu leiklistar og skapandi starfs fyrir ungt fólk. Leiksýningin IRIS er einn af ávöxtum Þjóðleiks og hefst sýningin kl. 20.00 í kvöld. Sýningin er ekki við hæfi ungra barna þar sem orðbragð og athafnir geta verið óviðkunnanlegar en á vel við í verkinu og gerir það áhrifaríkt fyrir þá sem á horfa.
Húsið opnar kl. 19.30 og er miðaverð kr. 1.000,- og tekið skal fram að ekki er tekið við greiðslukortum.