Ísbjörn á mánudagsmorgni

Skjáskot af Woman's Day Magazin.
Skjáskot af Woman's Day Magazin.

Ísbirnir eru íbúum á Norðurlandi vestra ekki alveg ókunnir. Þeir eru nokkrir sem hafa heimsótt svæðið undanfarna áratugi, t.d. í Fljótum og á Skaga. Þeir hafa verið í misjöfnu ásigkomulagi við komuna hingað, sumir þreyttir og illa til reika, en aðrir ferskir sem hafís. Að vísu hafa fæstir þeirra lifað þessar heimsóknir af, en það er önnur saga.

Ísbjörninn á meðfylgjandi myndbandi er nokkuð þreytulegur og þykir minna á opinberan starfsmann á leið til vinnu á mánudagsmorgni. Nú er bara að njóta sunnudagskvöldsins og mæta ferskur til vinnu á mánudagsmorgni!

 

Going into work on a Monday... (video: Getty)

Posted by Woman's Day Magazine on Monday, 29 June 2015

Fleiri fréttir