Ísland komið í 8. liða úrslit á EM U20 karla í körfuknattleik

Úr leik Íslands og Rússlands/Mynd: www.fiba.is
Úr leik Íslands og Rússlands/Mynd: www.fiba.is

Íslenska landsliðið U20 ára í körfuknattleik er sjóðandi heitt þessa dagana en það sigraði Pólland í æsispennandi leik í gær á EM U20 karla í Grikklandi. Leikurinn fór 62-60 og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins. Tveir Skagfirðingar leika með liðinu, þeir Viðar Ágústsson og Pétur Rúnar Birgisson. 


Pétur spilaði rúmar 20 mínútur í leiknum en á þeim tíma skoraði hann fimm stig, tók þrjú fráköst, stal boltanum einu sinni og gaf eina stoðsendingu.
Viðar lék um tæpar 13 mínútur og greip fimm fráköst og negldi niður einni þriggja stiga körfu. Hér má sjá frekari tölfræði úr leiknum.
Ísland mætir Georgíumönnum næstkomandi föstudag.

Fleiri fréttir