Íslandsmeistari í hnefaleik gengur til liðs við Tindastól/Hvöt

 Fótbolti.net segir frá því að Tindastóll/Hvöt hefur fengið framherjann Kolbein Kárason til liðs við sig á láni frá Val. Gengið var frá lánssamningum í vikunni en við sama tækifæri skrifaði Kolbeinn undir nýjan samning við Val til ársins 2012.

Kolbeinn, sem verður tvítugur á árinu, gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.

Í vetur hefur hann komið við sögu hjá Val í Reykjavíkurmótinu og í Lengjubikarnum. Þessi hávaxni leikmaður hefur ekki einungis verið í fótboltanum því hann varð einnig Íslandsmeistari í yfirþungavigt pilta í hnefaleikum í fyrra.

,,Ég hætti í fótbolta fyrir miðárið í 2. flokki og byrjaði að æfa box. Svo byrjaði ég aftur í fótbolta í ágúst í fyrra sumar. Ég varð Íslandsmeistari í boxi í apríl og keppti aðeins eftir það," sagði Kolbenn við Fótbolta.net.

Fleiri fréttir