Íslandsmót golfklúbba 15 ára og yngri

Stúlknasveitin sem skipuð var sameiginlegu liði með Golfklúbbnum Hamri Dalvík, ásamt liðstjóra sínum, Bjarna Jóhanni Valdimarssyni. Aðsendar myndir.
Stúlknasveitin sem skipuð var sameiginlegu liði með Golfklúbbnum Hamri Dalvík, ásamt liðstjóra sínum, Bjarna Jóhanni Valdimarssyni. Aðsendar myndir.

Drengjasveit GSS ásamt liðstjóra sínum, Atla Frey Rafnssyni.Íslandsmót golfklúbba 15 ára og yngri fór fram dagana 25-27. júní á Garðavelli á Akranesi. Golfklúbbur Skagafjarðar átti þar flotta fulltrúa. 

Drengjasveitin endaði í 13. sæti. Sveitina skipuðu þeir Alexander Franz Þórðarson, Axel Arnarsson, Bjartmar Dagur Þórðarson, Hallur Atli Helgason og Tómas Bjarki Guðmundsson. Liðsstjóri var Atli Freyr Rafnsson.

Stúlknasveitin var sameiginleg með Golfklúbbnum Hamri Dalvík og enduðu þær í 5. sæti. Sveitina skipuðu Anna Karen Hjartardóttir, Dagbjört Sísí Einarsdóttir, Rebekka Helena B. Róbertsdóttir, Una Karen Guðmundsdóttir og Magnea Ósk Bjarnadóttir GHD. Liðsstjóri var Bjarni Jóhann Valdimarsson GHD. Krakkarnir sýndu leikgleði og prúðmennsku á vellinum og voru klúbbum sínum til mikils sóma.  /Fréttatilkynning

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir