Íslensk reiðhefð í fortíð og nútíð - kennslusýning Hólanema

Nemendur á lokaári til BS í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum ætla að vera með kennslusýningu á morgun, laugardaginn 25. apríl. Sýningin ber heitið Íslensk reiðhefð í fortíð og nútíð og verður flutt með leikrænum tilburðum, samkvæmt fréttatilkynningu. 

Sýningin hefst kl. 13:00 í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók og er hún haldin í tengslum við Tekið til kostanna sem fer fram í reiðhöllinni síðar um kvöldið.

Fleiri fréttir