Íslenskt staðfest er nýtt upprunamerki fyrir matvörur og blóm

Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti nýtt upprunamerki fyrir matvörur og blóm, Íslenskt staðfest, í Hörpunni sl. mánudag. Merkinu er ætlað að auðvelda neytendum að velja íslenskar vörur. Með Svandísi eru Hafliði Halldórsson, sérfræðingur BÍ, Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri BÍ og Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ við afhjúpum merkisins. Myndir aðsendar.
Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti nýtt upprunamerki fyrir matvörur og blóm, Íslenskt staðfest, í Hörpunni sl. mánudag. Merkinu er ætlað að auðvelda neytendum að velja íslenskar vörur. Með Svandísi eru Hafliði Halldórsson, sérfræðingur BÍ, Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri BÍ og Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ við afhjúpum merkisins. Myndir aðsendar.

Í upphafi vikunnar kynnti, Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, nýtt upprunamerki, Íslenskt staðfest, sem á við um vörur sem eru framleiddar og pakkað á Íslandi. Merkinu er ætlað að auðvelda neytendum að velja íslenskt, en til að mega nota merkið þurfa framleiðendur að ábyrgjast að hráefni sé íslenskt og framleiðsla hafi farið fram á Íslandi. Kjöt, egg, sjávarafurðir og mjólk skal í öllum tilfellum vera 100% íslenskt. Allt að 25% innihalds í blönduðum/unnum matvörum má vera innflutt.

Svar við ósk neytenda

Í tilkynningu frá Bændasamtökunum segir að neytendur vilji skýrar upplýsingar um uppruna matvöru og betri upprunamerkingar enda vill yfirgnæfandi meirihluti velja íslenskt, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Icelandic Lamb 2021.

  • Tæp 90% svarenda telja upprunamerkingar mikilvægar.
  • Um 20% svarenda hafa upplifað að hafaverið blekkt við innkaup hvað varðar uppruna matvöru.
    Rúm 70% neytenda segjast óánægðir með að erlendar kjötafurðir séu seldar undir íslenskum vörumerkjum.
  • 63% svarenda óska þess að innlendar matvörur verði upprunamerktar.
  • Ríflega 80% neytenda kjósa íslenskar vörur í verslunum sé þess kostur.

Bændasamtök Íslands eiga og reka merkið. Vottunarstofan Sýni sér um úttektir hjá þeim fyrirtækjum sem kjósa að nota merkið. Enginn má nota merkið nema hafa til þess leyfi sem sótt er um sérstaklega, gangast undir staðal merkisins og uppfylla opinberar kröfur til sinnar starfsemi.

 

Markmið með merkinu:

  • Auka sýnileika og markaðshlutdeild íslenskra afurða.
  • Stuðla að því að íslenskar vörur rati á borð neytenda.
  • Tengja neytendur betur við frumframleiðendur og auka verðmæti innlendra afurða.
  • Fræða neytendur um kosti íslenskra matvæla og verslunar.
  • Festa merkið í sessi sem óumdeilt gæðamerki sem má treysta.

Merkið tryggir upprunann stadfest.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir