Isolation Game Jam leikjasmiðja á Kollafossi í sumar

Mynd af heimasíðu Isolation Game Jam
Mynd af heimasíðu Isolation Game Jam

Síðastliðin þrjú ár hefur fólk allstaðar að úr heiminum ferðast til norðvestur Íslands á sveitabæinn Kollafoss í Húnaþingi vestra með tvennt í huga; að klappa lömbum og búa til leiki. Í ár verður þeim sið haldið áfram, þar sem Isolation Game Jam leikjasmiðjan verður haldin 7. til 11. júní næstkomandi. Miðasala opnar á heimasíðu smiðjunnar fyrsta mars næstkomandi.

Samkvæmt tilkynningu frá leikjamiðstöðinni er mælt með að fólk tryggi sér miða eins fljótt og hægt er en síðustu ár hafa miðar selst upp á innan við 30 mínútum en pláss er fyrir sjö manns á viðburðinn. Miðasalan hefst klukkan 18:00 og kostar miðinn 13.000 krónur. Innifalið er svefnaðstaða, sæng, sængurföt, matur, internetaðgangur, kaffi, og fleira.

Game jam er nokkurs konar smiðja og hittingur sem tíðkast reglulega hjá leikjahönnuðum og áhugafólki um leikjahönnun. Þetta eru opnir viðburðir þar sem að fólk hittist og skapar leiki  á stuttum tíma og með fyrirfram ákveðnum reglum og áskorunum. Sjá HÉR.

Sveitabærinn Kollafoss er staðsettur innarlega í Vesturárdal, Húnaþingi vestra í rúmlega 25 mínútna keyrslu frá Hvammstanga, og 3ja tíma keyrslu frá Reykjavík. Þar búa Jóhannes Gunnar Þorsteinsson og Arnfríður Hanna Hreinsdóttir, kötturinn Shiva, og 20 kindur.

Jóhannes Gunnar Þorsteinsson er menntaður hljóð tölvuleikjahönnuður frá Háskólanum í Skövde, Svíþjóð, og árið 2014 hélt hann fyrsta Isolation Game Jam á Kollafossi. Ári eftir það var Kollafoss Game Farm opnað með hjálp frá Samtökum Sveitarfélaga Norðurlands vestra og Sóknaráætlun Norðurlands vestra.

Hægt að sjá upplýsingar og myndir á heimasíðu Isolation Game Jam  

Heimasíða Kollafoss Game Farm 

Fleiri fréttir