Íþróttahátíð í Árskóla í dag
Árleg íþróttahátíð Árskóla fer fram í dag en að henni lokinni halda nemendur og starfsfólk í langþráð vetrarfrí. Dagskráin hefst kl. 8:25 í íþróttahúsinu og lýkur u.þ.b. kl. 12:00. Á heimasíðu skólans kemur fram að foreldrum er velkomið að kíkja við í íþróttahúsið og fylgjast með deginum sem er að mati nemenda einn af bestu dögum vetrarins.
Auðveldast er fyrir áhorfendur að ganga inn í íþróttahús að vestanverðu en dagskrá er eftirfarandi; Kl. 07:40 Starfsfólk mætir til undirbúnings (allir sem tök hafa á)
Kl. 08:15 Nemendur mæti í íþróttahús
Kl. 08:25 Íþróttahátíð sett: Óskar Björnsson skólastjóri
Kl. 08:28 Setningaratriði 1. - 4. bekkur, blöðruatriði
Kl. 08:35 5. - 7. bekkur: 10 kollhn./handahl. / 1. - 4. bekkur dans
Kl. 08:45 5. bekkur: Dýnuskotbolti / 6. - 9. bekkur dans
Kl. 08:55 1. - 4. bekkur: Sjúkrahúsleikur
Kl. 09:05 5. - 6. bekkur: Fánaleikur (körfuboltavöllur)
Kl. 09:15 1. - 3. bekkur: Skotboltaleikur: Sínalkó
Kl. 09:22 4. bekkur: Blöðruboðhlaup
Kl. 09:30 8. - 9. bekkur: Reipitog
Kl. 09:36 4. - 7. bekkur Dans
Kl. 09:42 1. - 3. bekkur: Hringja - boðhlaup
Kl. 09:50 Fulltrúar 5. b - starfsfólk í bandý
Kl. 10:00 Fulltrúar 5. b - Starfsfólk í þrautaboðhlaupi
Kl. 10:10 Málsverður
Kl. 10:35 7. bekkur: Stinger + umsjónark. / 6. og 8. b. þrautaboðhlaup
Kl. 10:45 1. - 2. bekk: Pokaboðhlaup / 3. - 4. b. Skottaleikurinn
Kl. 11:00 9. bekkur: Blöðruboðhlaup
Kl. 11:10 1. - 2. bekkur: Skottaleikur
Kl. 11:20 3. - 4. bekkur: Paraklukkleikur / 5. b. pokaboðhlaup
Kl. 11:30 Fulltrúar 10. b. - kennara í körfubolta
Kl. 12:00 Íþróttahátíð slitið