Íþróttaskóli Tindastóls í fótbolta fellur niður um helgina

Íþróttaskólinn í fótboltadeild Tindastóls fellur niður um helgina vegna anna hjá íþróttafélaginu. Tindastóll spilar sinn fyrsta leik í lengjubikarnum á Akranesi á laugardaginn kl. 12 og síðan er úrslitaleikurinn í Körfu í Laugardalshöllinni kl. 16.

„Við hvetjum alla til þess að fara suður og styðja strákana í þessum leikjum,“ segir á heimasíðu Tindastóls en það ætla þjálfari íþróttaskólans og afleysingarfólk að gera og því fellur íþróttaskólinn niður.

Þeir sem komast ekki suður geta séð leikinn á breiðtjaldi á Mælifell.

 

Fleiri fréttir