Jafntefli gegn ÍBV
Meistaraflokkur karla mætti ÍBV í Lengjubikarnum sl. laugardag í Reykjaneshöllinni. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls komu Tindastólsmenn gríðar vel stemmdir í þennan leik og spiluðu virkilega flottan og góðan fótbolta á móti mjög sterku liði ÍBV.
Á heimasíðu Tindastóls segir að ÍBV hafi komið sterkir inn í seinni hálfleikinn og tóku ákveðin völd fyrstu 15 mínúturnar en Tindastólsmenn vörðust gríðar vel.
„ÍBV komst yfir með góðu viðstöðulausu skoti fyrir utan teig. Tindastóll efldist í raun við markið og tóku völdin aftur í sínar hendur og sýndu frábæran styrk sinn og vilja með því að jafna leikinn. Arnar Sig vann boltann og sendi Óskar Smára í gegnum vörn ÍBV og honum brást ekki bogalistinn þeim drengnum og setti hann af öryggi framhjá markmanni ÍBV,“ segir á síðunni.
Lýsingin heldur áfram og segir að aðeins nokkrum mínútum síðar komust eyjamenn aftur yfir með marki sem Messi hefði verið stoltur yfir.
„Þá setur leikmaður ÍBV boltann í fallegum boga yfir markmann stólana og upp í fjærhornið umkringdur leikmönnum tindastóls. Eins og áður héldu leikmenn Tindastóls áfram og spiluðu mjög vel og aftur sýndu þeim gríðarlega mikinn vilja og trú á verkefninu með því að koma aftur tilbaka og jöfnuðu í annað sinn. Þá sendi Konni frábæra sendingu inná teiginn þar sem Guðni og Arnar sig voru aleinir í teignum og Guðni tók sig til og lagði boltann fallega í markið af mikilli yfirvegun.
2-2 og allt í járnum.“
Í lokinn voru leikmenn Tindastóls óheppnir að skora ekki sigurmarkið en þeir fengu sannkallað dauðafæri þegar lítið var eftir en leikmaður ÍBV rétt náði að henda sér fyrir það, segir loks í lýsingunni.
Næsti leikur Tindastóls er við Grindavík í kvöld, þriðjudaginn 19. mars, kl. 20.30 í Reykjaneshöllinni.