Jákvæð fjárhagsáætlun hjá sameinuðum sveitarfélögum

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti fjárhagsáætlun sameinaðs sveitarfélags, Húnaþings vestra og Bæjarhrepps fyrir aðalsjóð og undirfyrirtæki árið 2012, á fundi sveitarstjórnar 26. janúar sl. en sameining sveitarfélaganna gekk í gildi þann 1. janúar sl. Um er að ræða samkeyrslu á áætlun beggja sveitarfélaganna en þær höfðu áður afgreitt fjárhagsáætlun fyrir 2012 hver um sig.  

Samkvæmt greinagerð með fjárhagsáætluninni er þetta í fyrsta sinn í sögu Húnaþings vestra að fjárhagsáætlun er lögð fram með jákvæðri niðurstöðu í heild sinni, þ.e. bæði á A- og B- hluta, frá því breyting var gerð á reikningsskilum sveitarfélagana 2002. Sá árangur er afar gleðilegur í ljósi þess að auknar kröfur hafa verið lagðar á sveitarfélögin með nýjum fjármálareglum sem tóku gildi sl. áramót.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2012
Áætlunin sem lögð var fram gerir ráð fyrir 4,6 millj. kr. tekjuafgangi af rekstri Aðalsjóðs og 21,5 millj. kr. afgangi af rekstri A-hluta samstæðunnar. Áætlað er að fráveita og hitaveita skili rekstarafgangi en að önnur B-hluta fyrirtæki séu rekin með halla. Rekstarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 56,4 millj. kr. en heildarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð um 5,0 millj. kr.

Tekjur A-hluta eru áætlaðar 937,6 millj. kr. en gjöld 907,5 millj. kr. Tekjur samstæðunnar eru áætlaðar 1.068 millj. kr. en gjöld 1.012 millj. kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 51,4 millj. kr.

Handbært fé frá rekstri til greiðslu afborgana lána og til fjárfestinga er kr. 75,8 millj. kr. Gert er ráð fyrir nýjum lántökum að upphæð kr. 34,0 millj. kr. og afborgunum lána að fjárhæð 70,5 millj. kr. Handbært fé í árslok er áætlað kr. 107 millj. kr. sem er lækkun um 1,4 millj. kr. frá ársbyrjun.

Framundan hjá Húnaþingi vestra
Gert er ráð fyrir nokkrum fjárfestingum og framkvæmdum í fjárhagsáætluninni á vegum sveitarfélagsins á árinu 2012. Má þar nefna gatna- og gangstéttaframkvæmdir, gatnalýsingu, áframhaldandi uppbyggingu grasvallar í Kirkjuhvammi og útivistarsvæðis við Syðri-Hvammsá. Fjárfestingar og framkvæmdir á vegum vatnsveitu á Laugarbakka og Hvammstanga, fráveitu á Hvammstanga og hitaveitu á Borðeyri.

Á árinu 2012 er gert ráð fyrir fjárfestingu vegna uppbyggingar námsvers vegna dreifnáms sem hefst næsta haust. Þá er gert ráð fyrir framkvæmdum við aðgengismál skólahúss og gatnagerð á Borðeyri.

Sveitarstjórn hefur einnig undirritað samkomulag við Símann um breytingar á símstöðvum á Hvammstanga og Laugarbakka til að auka nethraða og gagnaflutningsgetu kerfisins á þeim stöðum og í næsta nágrenni þeirra. Áætlað er að framkvæmdum vegna þessa verði lokið í byrjun aprílmánaðar.

Nánari upplýsingar má sjá hér í fundargerð 194. fundar Sveitarstjórnar Húnaþings vestra.

Fleiri fréttir