Jákvæð hugsun

Námskeiðið Jákvæð hugsun verður haldið á vegum hugleiðsluskólans Lótushúss á Sauðárkróki þriðjudagana 12. og 19. mars kl. 17:00-18:00. Námskeiðið fer fram í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki, FNV stofu 201. Aðgangur er ókeypis en kostnaði er mætt með frjálsum framlögum þátttakenda. Allir eru velkomnir og skráning er í síma 860 5180. Nánari upplýsingar um starfsemi Lótushúss má finna á www.lotushus.is

„Þú ert það sem þú hugsar! Þessi einfalda en sanna staðhæfing felur í sér að líðan okkar auk alls þess sem við segjum og gerum á uppruna sinn í huganum. Máttur hugans er eitt sterkasta en jafnframt vanmetnasta afl sem til er. Þegar við lærum að skilja og ná tökum á eigin huga opnast okkur leiðin að hamingju og innri sátt, auk þess sem við verðum betur í stakk búin til að takast á við daglegt líf,“ segir í tilkynningu frá Lótushúsinu.

Fleiri fréttir