Jákvæður viðsnúningur í rekstri Svf. Skagafjarðar

Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2012 var lagður fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær en hann samanstendur af upplýsingum um A hluta sveitarsjóðs og samantekin A og B hluta. Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 428 millj. króna, þar af er rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð fyrir afskriftir og fjármagnsliði um 176 millj. króna.

Rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar námu á árinu 3.548 millj. króna af samstæðunni í heild, A og B hluta. Þar af voru rekstrartekjur A hluta 3.098 millj. króna.

Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 3.120 millj. króna, þ.a. A hluti 2.922 millj. króna.

Afskriftir eru samtals 136 millj. króna, þar af 69 millj. króna hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals um 262 millj. króna, þ.a. eru 180 millj. króna fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs.

Rekstrarhagnaður A og B hluta á árinu 2012 er 16,7 millj. króna en rekstrarniðurstaða A hluta er neikvæð um 79 millj.króna.

-Þetta eru jákvæð tíðindi og mikið gleðiefni fyrir sveitarfélagið að vera búin að ná að snúa við rekstri sveitarsjóðs og skila honum í plús, segir Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðarráðs. Hann bendir á að það hafi ekki gerst síðan 2007 og í raun annað skiptið frá stofnun sveitarfélagsins frá 2002 þegar ný reikningsskil tóku gildi.

-Þannig að það er alveg ljóst að þessar hagræðingaraðgerðir sem sveitarstjórn stóð að á árinu 2012 og snéru að heildarendurskoðun á rekstri og uppstokkun á allri starfsemi sveitarfélagsins hafa skilað þessum árangri og það ber að þakka starfsmönnum sveitarfélagsins sem stóðu með sveitarstjórn í þessum aðgerðum. Þessi árangur hefði aldrei náðst án þeirra og með samstilltu átaki.

Stefán segir verkefnið ekki þar með búið því nóg sé eftir að gera. - Það má ekki láta deigan síga. Við þurfum að halda áfram á þessari braut og það gerir alla uppbyggingu og framkvæmdir og annað sem sveitarfélagið stendur fyrir miklu auðveldara þegar rekstrarniðurstaðan er með þessum hætti. Það er líka ánægjulegt að sjá að skuldaniðurstaða sveitarfélagins, sem menn höfðu áhyggjur af að færi yfir 150% sem ekki má samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum, er eftir að hluti lífeyrisskuldbindinga hefur verið dregin frá líkt og lög gera ráð fyrir að megi, stendur í 134% sem verður að teljast afskaplega gott og mjög viðunandi tala, segir Stefán Vagn.

Fleiri fréttir