Járningafræðsla í Tjarnarbæ

Fræðslunefnd hestamannafélagsins Léttfeta mun standa fyrir járningafræðslu á morgun þriðjudaginn 8. febrúar í Tjarnarbæ kl: 20:00.  Járningameistarinn Kristján Elvar Gíslason mun fjalla um járningar almennt en einnig fræða gesti um hvernig best sé að járna t.d klárgengan hest, hest sem er bundinn á tölti, hest með sprungna hófa o.s.frv.

Fræðslunefndin hvetur alla til þess að mæta og nýta sér vitneskju og ráð frá Elvari.

Fleiri fréttir