„Jóga er fyrir alla, galdurinn felst bara í því að finna sér jógategund við sitt hæfi“
Jógakennarinn og viðskiptafræðingurinn Sólveig Þórarinsdóttir frá Sauðárkróki er Skagfirðingur í húð og hár, ættuð úr Hegranesi og Unadal á Höfðaströnd. Hún opnaði nýlega Sólir jóga og heilsusetur í Örfirisey og býður þar upp á fjölbreytta þjónustu á sviði jóga heilsu. Sólveig segir að fyrsta reynsla sín af jóga hafi verið meðgöngujóga sem hún prófaði á sinni fyrstu meðgöngu árið 2007.
„Ég var engan vegin móttækileg á þeim tíma og tók ákvörðun um að þetta væri ekkert fyrir mig, heldur bara fyrir „öðruvísi fólk“, hvað sem það nú þýddi. En fyrir tilstuðlan frænku minnar, Skagfirðingsins Valdísar Sigurgeirsdóttur, ákvað ég að prófa heitt jóga fáum árum síðar. Ég kolféll fyrir því og það var ekki aftur snúið, ég náði mér í 500 klukkustunda kennararéttindi í Asíu en ég hef stundað jóga reglulega síðan árið 2010,“ segir Sólveig.
Hún bætir því við að fjölbreytileikinn í jóganu sé alveg gríðarlegur og hún hafi þá sýn að jóga sé fyrir alla. „Galdurinn felst bara í því að finna sér jógategund við sitt hæfi. Ég hef ánægju af þeim öllum en get ekki neitað því að mér líður einstaklega vel þegar ég næ þessum heilandi og endurnærandi áhrifum sem fást í heitu jóga.“
Sólveig er fædd á sama tíma og Vigdís Finnbogadóttir var kosinn forseti og hvort sem það hefur haft áhrif eða ekki þá er þarna greinilega á ferðinni athafnasöm kona sem lætur verkin tala. Sólveig er í opnuviðtali Feykis sem kemur út í dag.