Jólaljósin tendruð á jólatrénu

Góð stemning var á Hvammstanga sl. laugardag þegar voru ljósin tendruð á jólatrénu við Félagsheimilið. Samkvæmt Norðanáttinni var sæmilega kalt í veðri en íbúar létu það ekki á sig fá, enda höfðu jólasveinarnir boðað komu sína.

 

Eftir að hafa rætt um jólaandann fékk Leó Örn Þorleifsson nokkra krakka með sér í lið að telja niður þar til ljósin á jólatrénu voru tendruð. Nokkrar fræknar stúlkur sungu jólasöngva á meðan gengið var í kringum jólatréð. Jólasveinarnir fengu far á svæðið með slökkviliðsbílnum og kættust krakkarnir heldur betur við að sjá þá, ekki síst vegna þess að þeir komu með eilítið góðgæti með sér að heiman.

HÉR er hægt að nálgast nokkrar myndir frá deginum.

/Norðanáttin

Fleiri fréttir